17.9.2007 | 23:07
Eins gott að fylgjast með
Í dag kom til mín maður sem sagðist ekki hafa fengið reikninga í dálítinn tíma. Ég hugsaði strax að þetta væri einn af þeim sem greiddi reikningana sína með korti eða beingreiðslu og myndi ekki eftir því en það hefur svo oft komið fyrir. Þegar ég fór svo að skoða þetta í tölvukerfinu þá hafði hann ekki fengið reikninga síðan í lok ársins 2004. Þá var mér nú hætt að lítast á blikuna og skildi hvorki upp né niður og fór að skoða þetta nánar. Ég sá þó fljótlega að það hafði verið hringt og maðurinn tilkynntur út úr íbúðinni og annar settur í staðin, sá maður er greinilega með allt sitt í beingreiðslu og er semsagt búin að vera að greiða fyrir íbúð sem hann býr ekki í plús sína íbúð í rúmlega tvö og hálft ár án þess að taka eftir því, það er sko eins gott að fylgjast með því hvort reikningarnir sem á að greiða skili sér til að þurfa ekki að fá háa reikninga í hausinn.
Ermin er sennilega í lagi núna, ég á eftir að prjóna örlítið meira áður en hún fer á ,,aðalprjóninn'' ég vona að ég þurfi ekki að fullkomna hana með fjórða skiptinu
Ég ætti svo einhvern tíman að setja hér inn mynd af jakkanum sem mig langar svo í en hann er ekki í almennri sölu svo að ég þarf sennilega að fara á nokkra ára saumanámskeið til að geta saumað samskonar flík .. nema ég prjóni hann bara ..
Um bloggið
Mi vida
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Getur þessi með beingreiðsluna ekki tekið fleiri reikninga að sér
Hvernig gengur að prjóna núna? Er fyrri ermin komin á aðalprjóninn?
kv
Kidda
kidda, 18.9.2007 kl. 21:05
Hehe ég gæti spurt hann, ég léti hann taka mína reikninga líka. Peysan mjakast áfram og gaman að vera byrjuð á mynstrinu. Ég skrifaði smá um þetta í nýju færslunni, ég var víst ekki búin að lesa þetta komment áður en ég skrifaði
Merlin, 19.9.2007 kl. 23:28
Það var gömul kona frá Ísafirði sem flutti í blokk í Reykjavík. Hún borgaði rafmagnið fyrir allt húsið í nokkra mánuði, þegar það uppgötvaðist, þá var hún alveg undrandi því henni fannst þetta svo sem ekki mikið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2007 kl. 08:52
Aumingja konan Ég þarf reyndar að passa mig svolítið því ég er í greiðsluþjónustu og er nú ekkert alltaf að skoða vel þessi yfirlit sem ég fæ
Merlin, 21.9.2007 kl. 09:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.