24.9.2007 | 14:03
Bloggið
Ég hef svona verið að velta fyrir mér með þetta blogg og vinalistann, mér finnst vanta að ég geti haft einhvern sem vin sem þarf svo ekki endilega að samþiggja mig sem sinn vin, þá gæti ég séð þegar það kemur ný færsla hjá viðkomandi á minni síðu. Mér finnst gaman að lesa blogg frá nokkrum bloggurum eins og, ef ég nefni dæmi, Jenný sem er svo oft á forsíðunni og skrifar oft svo skemmtilega og Katrín sem skrifar yfirleitt fallegar línur í bloggið sitt og er oft með mjög flottar myndir sem hæfir innlegginu (eða hvað ég á að kalla það) Þær þekkja mig ekki neitt og nenna örugglega ekki að lesa mitt blogg um minn persónulega þankagang, enda er ekkert voðalega gaman að lesa um einhvern sem maður þekkir ekki neitt nema sá hin sami hafi eitthvað öðruvísi eða merkilegt að segja. Ég tók reyndar þessi 2 nöfn sem dæmi því ég rakst einu sinni á þær á forsíðunni, ég hef verið að rekast á bloggara sem mér finnst gaman að lesa og sett þeirra síður í favorites sem er nú alveg ágætt en hinn möguleikinn væri þægilegri.
Ég er búin að sauma og klippa peysuna og var búin að hekla öðru megin en varð að rekja allt upp því ég þarf að reyna að búa til fleiri lykkjur svo að ég geti haft jafnara bil á milli hnappagata, sjáum til hvernig mér gengur með það í kvöld. ég fer svo bráðum að geta tekið mynd af þessu handverki mínu sem ég set svo hér inn til að geta montað mig smá.
Um bloggið
Mi vida
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Skil hvað þú meinar
en kann ekkert á þetta. Að mínu bloggi hafa bara 3 aðilar aðgang.
Hlakka til að sjá mynd af meistarastykkinu
kidda, 24.9.2007 kl. 15:52
Já það fer að líða að því að ég setji inn mynd, ég á svo rosalega lítið eftir
Merlin, 25.9.2007 kl. 14:51
Stelpur mínar, það er bara að banka upp á og biðja um að vera bloggvinir. Ef einhver segir nei, þá er það bara þannig. En þið eruð yndælar báðar tvær og það vilja örugglega allir vera vinir ykkar. Svona koma svo
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2007 kl. 23:19
Já en er ekki fúlt að vera með fullt af fólki sem vini á síðunni sinni sem maður nennir svo ekki að lesa
Merlin, 25.9.2007 kl. 23:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.