Sumir eru skrýtnari en aðrir :o)

Í dag horfði ég upp á skondið atvik, kona sat við skrifborð og spratt allt í einu á fætur, æddi að skáp sem geymir yfirhafnir. Kom svo aftur til baka og sagðist ætla að skreppa aðeins út í bíl á meðan hún fór í kápuna og vafði á sig trefli. Síðan labbaði hún rétt yfir götuna sem er alveg fyrir framan húsið sem við vorum í og fór upp í bílinn, spennti á sig öryggisbeltið og setti í gang. Við vorum nokkrar þarna og fylgdumst með þessu og fórum að spá í hvert konan væri að rjúka. Þessi kona fór ekki langt því hún var að færa bílinn í stæði sem er fyrir framan húsið. Ég persónulega hefði ekki nennt þessu, í fyrsta lagi var hálftími þangað til hún færi heim, í öðru lagi fara í öll þessi föt, í þriðja lagi spenna öryggisbeltið, ég sá þetta ekki vel en ég er 100 % viss um að hún hafi sett stefnuljósið á LoL 

Ermarnar eru komnar á aðalprjóninn og ég er langt komin með mynstrið .. jii hvað mér finnst skrýtið að segja mynstur en ekki munstur ..  Mér óar samt pínu fyrir að sauma og klippa peysuna í sundur en ef eitthvað gerist þá prófa ég bara að prjóna aðra hehe


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: kidda

mynstur- munstur, hvort er réttara. Ég heyri bæði orðin og held að ég noti þau bæði

Vá bara komnar 2 ermar, mynd af peysunni óskast  þegar hún er búin

kidda, 20.9.2007 kl. 11:31

2 Smámynd: Merlin

Já ég tek mynd af henni og set inn

Merlin, 20.9.2007 kl. 15:04

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já endilega gerður það Merlin mín.  En blessuð konan hehehe... þvílík fyrirhöfn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.9.2007 kl. 08:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mi vida

Höfundur

Merlin
Merlin

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Garn
  • Sjonni

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 9
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1228

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband